Prestur safnaðarins í þriggja mánaða námsleyfi

Sr. Arna Grétarsdóttir prestur safnaðarins fer í 3ja mánaða námsleyfi frá 1.september – 30. nóvember n.k.  María Gunnarsdóttir hefur verið ráðinn sem fræðslufulltrúi safnaðarins og mun sjá um það sem viðvíkur safnaðarstarfinu sem og bjóða upp á sálgæsluviðtöl.

Ef óskað er eftir prestsþjónustu þennan tíma hefur safnaðarstjórn ákveðið að leita til íslenskra presta sem búsett eru víða um Noreg.  Milligöngu um prestsþjónustu hafa bæði María og Inga á skrifstofunni. (starfsmadur@kirkjan.no og fraedsla@kirkjan.no )

Sr. Arna mun fara með fermingarbörnunum á fermingarfræðsluhelgi í lok september og messa í Nordberg kirkju á allra heilagra messu 4. nóvember kl.14. Að öðru leiti verður hún frá störfum.