Messa verður í Nordberg kirkju kl.14 sunnudaginn 7.nóvember n.k. Þar verður látinna vina og ættingja minnst með því að tendra minningar- og bænaljós. Eins minnumst við sérstaklega þeirra sem dáið hafa á síðast liðnu ári. Fyrsta sunnudag í nóvember ár hvert er Allra heilagra messa og sá dagur er tileinkaður þeim sem fallið hafa frá.
Fermingarbörn hjálpa til við messuhaldið og Ískórinn syngur að venju. Kaffihlaðborðið er í umsjá Íslendingafélagsins og er kirkjugestum að kostnaðarlausu. Sunnudagaskólinn og barnakórinn á sínum stað.
Verið hjartanlega velkomin.
