FJölskylduguðsþjónusta í Nordberg kirkju í Ósló

Líf og fjör verður í kirkjunni 7.febrúar n.k en þá verðu guðsþjónustan helguð börnum og fjölskyldunni. Sunnudagaskólaleiðtogarnir, Ískórinn og prestur leiða stundina saman. Einar Traustason og Daníel Sigurðsson lesa ritningalestra. Yfirskrift guðsþjónustunar er "Á ég að gæta bróður míns". Sálmar verða á léttum nótum með píanó og gítarundirleik.

Hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.

Read More »

Aðventuhátíð á sunnudaginn kl.17

 Aðventuhátíð í Nordberg kirkju kl.17.

Formaður safnaðarstjórnar Gunnar Hólm setur hátíðina.

Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir flytur hátíðarávarp. Ískórinn syngur ásamt einsöngvurum og strengjasveit undir stjórn Ketil Grøtting. Peggy Jenset er organisti að venju. Hluti Jólaóratoríu Bach´s og þekktar jólaperlur. Íslendingafélagið í Ósló hefur umsjón með kaffiveitingum.

Read More »

Hvítasunnuhelgin í Norefjell

Léttmessa verður haldin við Norefjell húsið á hvítasunnudag kl.14. Gítarundirleikur og Ískórinn með léttu sniði undir berum himni. Endilega fáið ykkur bíltúr í Norefjellhúsið og eigið góða og uppbyggilega samveru og kaffi á eftir. Fjölskyldumót er haldið þessa helgi á vegum safnaðarins. Enn er pláss í húsinu. Hafið samband símleiðis. Hlakka til að sjá ykkur. Arna Grétarsdóttir prestur. 

Read More »

Lýðveldishátíðin

17. júní hátíðarhöldin Lýðveldisháðin verður haldin sunnudaginn 14. júni við Nordberg kirkju í Ósló kl. 14 í samstarfi Íslendingafélagsins í Ósló og Íslenska safnaðarins.
Sendiherra Íslands í Noregi Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir verður með ávarp, formaður Íslendingafélagsins Sigrún Jóna Andradóttir býður fólkið velkomið. Ískórinn syngur nokkur lög og
Sr. Arna Grétarsdóttir verður með hugvekju og bæn og síðan kemur hin fagra fjallkona fram og fer með ljóð.
Skemmtinefnd Íslendingafélagsins verður með leiki fyrir alla fjölskylduna og einnig verður skrúðganga með lúðrasveitinni og Osvald í fararbroddi með íslenska fánann. Boðið verður upp á kaffi og kræsingar, en einnig verða seldar íslenskar SS pylsur, íslenski fáninn og íslenskt sælgæti. Verið hjartanlega velkomin.
 

Read More »