Á Skírdag 28.mars (fimmtudagur) verður guðsþjónusta og Getsemanestund kl.17 í Ólafíustofu. Stundin hefst á borðhaldi þar sem Jóna Magga hin velþekkta súpugerðarkona ber fram dýrindis súpu og brauð. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Altarisganga. Stundin markar lok námskeiðs um kristna trú og lífsýn.
Í lok stundarinnar verður altarið afskrýtt, svartur dúkur settur á það ásamt fimm rauðum rósum er tákna fimm svöðusár Jesú Krists. Gengið út í þögn um kl.19.
Verið hjartanlega velkomin.
Á Páskadag 31. mars verður hátíðarguðsþjónusta kl.14 í Ólafíustofu. Mikil tónlistarveisla undir stjórn Hjörleifs Valssonar fiðluleikara. Félagar úr Ískórnum leiða sálmasöng.
Börn og fullorðnir hjartanlega velkomin.
Páskaeggjaleit eftir stundina í umsjá sunnudagaskólaleiðtoganna. Kaffi og hátíðartertur í umsjá Íslendingafélagsins.
Verið hjartanlega velkomin hátíðarstundar á upprisuhátíð frelsarans.
