Sunnudaginn 4. febrúar verður messa í Nordberg kirkju í Osló kl.14.00
Sr. Örn Bárður Jónsson leiðir stundina. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta
Ískórinn syngur undir stjórn Gróu Hreinsdóttur.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með sögustund, söng og leikjum í umsjón Rebekku Ingibjartsdóttur.
Kirkjukaffi og samfélag í safnaðarheimilinu að lokinni messu.
Verið hjartanlega velkomin í Nordberg kirkju !

