Jólamessa og jólatrésskmmtun í Hellemyr kirkju í Kristiansand (Bydalsveien 19, 4628 Kristiansand S) 3.sunnudag í aðventu 17. desember kl.14.
Sr. Lijla Kristin Þorsteinsdóttir leiðir stundina. Margrét Ólöf Magnúsdóttir hefur ofan af fyrir yngstu kirkjugestunum undir messunni.
Kveikt verður á aðventukranskinum og Kristín Magdalena Ágústsdóttir syngur einsöng.
Jólatrésskemmtun verður á sínum stað eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu þar sem dansað verður í kring um jólatréð, Glaðningur handa yngstu kynslóðinni.
Jólakaffiveitingar í umsjón Íslendingafélagsins á svæðinu.
Verið hjartanlega velkomin.

