Fimmtudaginn 14. desember frá kl.11- 16 verður opið hús fyrir gesti og gangandi, upplestur og jólastemmning í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20 í Osló,.
Lesnir verða valdir kaflar úr sögu Gunnars Gunnarssonar, Aðventu. Upplestur hefst kl.12:30
Aðventa kom út á íslensku árið 1939 og hefur verið gefin út á 10 tungumálum um víða veröld. Mörgum finnst sagan jafn ómissandi um jólin og jólaguðspjallið sjálft.
Við hvetjum ykkur til að kíkja við í Ólafíustofu, heyra þessa dásamlegu sögu og njóta léttra veitinga í góðum félagsskap.
Í hádeginu jk,12:15 verður boðið upp á jólagraut, en fram eftir degi verður heitt á könnunni, bæði kaffi og kakó.
Verið öll hjartanlega velkomin.
