Hátíðarmessa verður annan jóladag (26.desember) kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Sr. Ragnheiður Karítas leiðir stundina.
Ískórinn leiðir sálmasöng og hátíðarmessutón undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Organisti verður Ole Johannes Kosberg.
Kirkjukaffi og jólaball eftir messu í umsjá Íslendingafélagsins. Dansað í kringum jólatré, sungið og leikið. Glaðningur fyrir yngstu kynslóðina.
Verið hjartanlega velkomin til hátíðarstundar.
