Innsetningarmessa nýs sóknarprests Íslensku kirkjunnar í Noregi, 2. október kl. 14.

ragga

Þann 1. október næstkomandi mun sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir taka við stöðu sóknarprests Íslensku kirkjunnar í Noregi, í stað sr. Örnu Grétarsdóttur sem lét af störfum þann 1. júlí s.l.

Sr. Ragnheiður Karítas hefur áralanga prestsreynslu bæði á Íslandi og hér í Noregi ásamt því að hafa þjónað Íslendingum á Spáni um nokkurt skeið. Hún er með mastersgráðu í sálgæslu auk þess hefur hún aflað sér sérmenntunnar á sviði sálfræðinnar.

Sr. Ragnheiður Karítas verður sett inn í embætti við Íslensku kirkjuna í Noregi við hátíðlega athöfn þann 2. október n.k. í Nordberg kirkju í Osló, athöfnin hefst kl. 14 og allir eru hjartanlega velkomnir til kirkju.

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur í Reykjavíkurprófastdæmi vestra mun setja sr. Ragnheiði Karítas inní embætti. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, heimsækir söfnuðinn af því tilefni. Sr. Arna Grétarsdóttir og sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir, þjóna í athöfninni. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar, Margrét Brynjarsdóttir syngur í athöfninni. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma. Kirkjukaffi og samfélag í umsjón Íslendingafélagsins í Osló á eftir messunni.