Næsta sunnudag, 6. mars kl. 14:00, verður guðsþjónusta í Skjold kirkju, Skjoldlia 55, Bergen.
sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir guðsþjónustuna. Sönghópurinn í Bergen syngur og leiðir almennan söng.
Gígja Guðbrandsdóttir, Valur Guðjón og Ólöf Halldóra sjá um sunnudagaskólann sem verður á sama tíma. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir messuna.
Þetta er tilvalið tækifæri til þess að hitta aðra Íslendinga og eiga notalega stund saman.
Verið hjartanlega velkomin !
