Hjóna- og paramessa verður sunndaginn 6. mars kl.14 í Nordberg kirkju í Óslo. Þema messunnar er ástin, kærleikurinn og samböndin í lífi okkar. Predikunin verður samtalspredikun milli prests og hjóna sem segja frá reynslu sinni af löngu sambandi.Það eru hjónin Elín Kolbeins og Otto Guðjónsson og Ágústa María Arnardóttir og Hjörleifur Valsson sem þjóna með sóknarpresti. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og fallegar ástarperlur flytur Dóra Steinunn Ármannsdóttir. Fermingarbörnin aðstoða við helgihaldið. Altarisganga og hjónablessun fer fram í messunni.
Fjólublár hökull og stóla sem er hluti af messuskrúða prests verður tekinn í notkun með bænarorðum. Hanna María Helgadóttir hefur saumað og bróterað.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í messu hjón, pör og einhleypir.
Sunnudagaskóli á sama tíma og kaffi í safnaðarheimilinu í umsjá Íslendingafélagsins í Oslo.
Verið hjartanlega velkomin í kærleiksmessu.
Ath! Vegna forfalla er pláss fyrir ein hjón til viðbótar á hjónanámskeiðið á laugardeginum sem fram fer í Ólafíustofu. (sjá sér auglýsingu hér á síðunni).
