Fimmtudaginn 14. janúar klukkan 12:00 verður árleg hangikjötsveisla fyrir 60 ára og eldri haldin í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, á vegum Íslenska safnaðarins í Noregi.
Það má gera ráð fyrir góðri stemningu og boðið verður upp á íslenskt hangikjöt og viðeigandi meðlæti.
Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir.
Við hlökkum til að sjá ykkur,
Ása Laufey, Osvald og Rebekka
