17. júní hátíðarhöld Íslenska safnaðarins og Íslendingafélagsins í Osló verða haldin sunnudaginn 14. júní í Nordberg kirkju í Oslo.
Hátíðarhöldin hefjast með hátíðarhelgistund í Nordberg kirkju kl.14. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Guðbjörg Magnúsdóttir syngur einsöng og við píanóið og orgelið situr Ole Johannes Kosberg.
Hátíðarræðu flytur formaður Íslendingafélagsins í Osló, María Matthíasdóttir og fjallkona er Elín Theódóra Alfredsdóttir.
Lúðrasveitin verður á sínum stað og leiðir skrúðgöngu.
Það verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með hoppukastala, andlitsmálun fyrir börnin og þau sem vilja geta farið á hestbak.
Verið hjartanlega velkomin.
