Sunnudaginn 11. janúar klukkan 16:00 verður árleg hangikjötsveisla fyrir 60 ára og eldri haldin á vegum Íslenska safnaðarins í Noregi. Að þessu sinni hittumst við í Antennaveien 40, Lambertseter Ósló. (Þar sem skötuveislan hefur verið áður)
Það má gera ráð fyrir góðri stemningu og boðið verður upp á íslenskt hangikjöt og viðeigandi meðlæti.
Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir.
Við hlökkum til að sjá ykkur,
Ása Laufey, Osvald og Einar.
