Sunnudaginn 31. ágúst kl. 14 verður guðsþjónusta í Gamle Aker kirkju. (Akersbakken 26)
Sr. Ágúst Einarsson annast prestþjónustu ásamt Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur fræðslufulltrúa Íslenska safnaðarins í Noregi. Leiðtogar úr sunnudagaskólanum aðstoða við guðsþjónustuna.
Ronja María Giljan Grímsdóttir syngur einsöng. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar.
Íslendingafélagið sér um kirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu (Akersbakken 30.)
Verið öll hjartanlega velkomin !
