Skráning í fermingarfræðslu safnaðarins er hafin fyrir veturinn 2014-2015. Foreldrar fermingarbarna sem vilja skrá börnin sín í fermingarfræðslu gera það rafrænt hér á heimasíðunni okkar, til hægri á síðunni undir „fermingarskráning“.
Fermingarfræðslan saman stendur af tveimur helgarnámskeiðum í samstarfi við íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku. Námskeiðin fara fram í Aah Stiftgaard í Svíðþjóð og er mestur kostnaður við námskeiðin greiddur af söfnuðinum. Fyrra námskeiðið er á haustönn dagana 26. –
28. september en seinna námskeiðið er á vorönn dagana 8.-10. maí 2015.
Aðal fræðslan fer fram á þessum helgum. Fermingarfræðslutímar verða skipulagðir eftir að skráningu er lokið. Einnig er gert ráð fyrir að fermingarbörnin mæti í messur og/eða sunnudagaskóla en frekari tilmæli um það koma síðar.
Fermt verður á annan í hvítasunnu í Osló. Ferming á Íslandi verður 28. júní 2015 í Seltjarnarneskirkju en aðrir fermingardagar verða ákveðnir eftir óskum og fyrirspurnum um landið þegar skráningu er lokið.
