Fjölskylduguðsþjónusta 16. febrúar kl.14 í Skjold kirkju i Bergen. Ilmur, nærvera og karnivalstemning.
Íslendingakórinn í Bergen syngur og sér um kaffi á eftir. Ingibjartur Jónsson leiðir tónlistina og spilar á orgelið.
Helga og Rebekka sjá um sunnudagaskólahornið að venju.
Þetta er messa fyrir börn og fullorðna og fá börnin fræðslu við sitt hæfi undir predikunarhlutanum sem fjallar um nálægð fyrirgefningarinnar.
Fermingarbörn aðstoða við helgihaldið.
Verið hjartanlega velkomin.
