Íslenski söfnuðurinn í Noregi hefur eignast sitt fyrsta safnaðarheimili sem hefur verið nefnt Ólafíustofa til heiðurs Ólafíu Jóhannsdóttur sem líknaði þurfandi á götum Óslóar um aldamótin 1900.
Safnaðarheimilið er við Pilestredet Park 20 í Ósló og rúmar hópastarf fyrir allt að 50 manns, skrifstofur prests og starfsmanns. Eins er hægt að vera með helgihald þar sem lítilli kapellu var komið fyrir í fjölnota rými.
Ólafíustofa er opin virka daga frá kl.10-15. Þar er heitt kaffi á könnunni, hægt er að flétta íslenskum dagblöðum eða glugga í bókasafn Guðrúnar Brumborg.
Alla fimmtudaga verða kyrrðarstundir frá kl. 12.15-12.30.
Herra Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup blessaði safnaðarheimilið og messaði ásamt sr. Örnu Grétarsdóttur presti safnaðarins við hátíðlega athöfn í Nordberg kirkju.
