Guð gefi þér og þínum gleði og frið á heilagri jólahátíð. Megi boðskapur jólanna ná inn að hjartarótum og fylla líf þitt af þakklæti, kærleika og friði. Friðar- og gleðiboðskapurinn fjallar um að Drottinn sjálfur, sonur Guðs frelsari heimsins sem fæddist á jólum vill mæta þér, leiða og styrkja í þeim verkefnum sem lífið hefur fært þér.
Minni ykkur á hátíðarguðsþjónustu á aðfangadag í Dómkirkjunni í Reykjavík sem auðvelt er að hlusta á í gegnum netið.
Annan jóladag verður svo messa kl.13 í Nordberg kirkju í Ósló. Sjá auglýsingu hér á síðunni.
Með kærri jólakveðju og blessunaróskum,
Arna Grétarsdóttir, prestur.
