Jólamessur og jólaball í Stavanger og Þrándheimi sunnudaginn 11.desember.

Stavanger

Jólamessa í Varden kirkju í Stavanger á sunnudaginn 11.desember kl.11. Katrín Ósk Óskarsdóttir söngkona og Hjörleifur Valsson fiðluleikari gleðja okkur með sínum fögru tónum. Fermingarbörn aðstoða við messuhaldið. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari. Stundin er sniðin bæði fyrir börn og fullorðna. Jólaball og kökuhlaðborð í umsjá Íslendingafélagsins á eftir messunni. Verið hjartanlega velkomin.

Þrándheimur

Jólamessa í Bakke kirkju í Þrándheimi á sunnudaginn 11.desember kl.14. Íslenski kórinn í Þrándheimi syngur. Sr. Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir altari. Kaffi og jólagotterí á eftir. Verið hjartanlega velkomin.