LANDSMÓT ÆSKULÝÐSFÉLAGA ÞJÓÐKIRKJUNNAR
Nú líður að landsmóti ÆSKÞ sem Íslenski söfnuðurinn hefur boðið fermdum unglingum að fara á s.l ár. Hér er á ferðinni frábær dagskrá með uppbyggilegri skemmtun og fræðslu fyrir unglingana okkar. Flogið verður 27.okt og til baka 31.okt. n.k. Enn eru örfá sæti laus og eru þau sem hafa áhuga beðin um að hafi samband við Örnu prest.
Mótið er haldið á Selfossi 28.- 30.október 2011.
金の心
Styðjum börn sem misstu foreldra í jarðskjálftunum í Japan
“"Og ég mun gef þeim nýtt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst" (Esk, 11:19)
Um mótið:
Mótið í ár verður góðgerðarmót þar sem við beinum sjónum okkar til barna í Japan sem eiga um sárt að binda eftir hinar miklu náttúruhamfarir í landinu fyrr á árinu. Um 1200 börn og unglingar yngri en 20 ára misstu foreldra sína í skjálftunum og flóðunum sem fylgdu á eftir. Mörg þessarra barna þjást af áfalla-streituröskun og hafa geðlæknar bent á að besta leiðin til bata sé að gefa börnunum kost á að dvelja í áhyggjulausu umhverfi þar sem þau fá notið sín í leik og starfi. Ákveðið hefur verið að láta afrakstur þess sem safnast á mótinu renna til hjálparsamtaka í Japan sem nefnast ,,Hearts of Gold”. Samtökin hafa það að markmiði að gera líf þessara barna bærilegra m.a með því að gera þeim kleift að sækja skólaferðalög, sumarbúðir og fleira. Toshiki Toma, prestur innflytjenda og Hjálparstarf kirkjunnar halda utan um söfnunina með okkur.
Dagskrá mótsins verður góð blanda af helgihaldi, leik, söng og fræðslu. Sameiginleg fræðsla á laugardagsmorgninum er í höndum Sr. Sigurvins Jónssonar æskulýðsprests í Neskirkju og Sr.Toshiki Toma prests innflytjenda. Eftir fræðsluna tekur við hópastarf og meðal þess sem í boði verður er: Japönsk tíska, Kristileg tónlist, Sævar Poetrix, Karate, Björgunarsveit, Breytendur, Sushi, Kökuskreytingar, Dans, Manga, Origami, Leikjahópur, Quidditch, íþróttir og fl. Kvöldvökur og helgistundir verða auðvitað á sínum stað svo ekki sé minnst á búningaballið þar sem Ingó Veðurguð, Stuðlabandið og Dj Búni halda upp stemmningunni.
Í ár efnum við til búningakeppni og skemmtiatriðakeppni. Veitt verða þrenn verðlaun í hvorum flokki fyrir sig. Þemað á búningaballinu er rautt, sem minnir okkur á Japan.
